grettla.com

Skilmálar

Gilda frá 3. nóvember 2026

Í stuttu máli: Aðgangurinn er fyrir þig eina(n). Hann virkar á einu tæki í einu og má ekki deila, selja eða lána. Ef aðgangi er deilt eða efnið afritað og birt annars staðar má loka honum án endurgreiðslu. Þú getur hætt við kaup og fengið endurgreitt innan 14 daga, svo lengi sem þú hefur ekki skráð þig inn.

1. Um þjónustuna

grettla.com býður námsefni í íslenskum fornbókmenntum. Gylfaginning er seld sem aðgangur að vef með textanum, hljóðbók, myndböndum, skýringum og æfingum. Seljandi og þjónustuaðili er Dagur Ingi Ingason. Netfang: [email protected].

2. Kaup og verð

3. Réttur til að hætta við kaup

Samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 hefur þú 14 daga frá kaupum til að hætta við. Sendu þá póst á [email protected], og þú færð greiðsluna endurgreidda innan 14 daga.

Aðgangurinn er stafrænt efni sem er afhent strax. Þegar þú skráir þig inn í fyrsta sinn hefst afhending, og með því samþykkir þú að hún hefjist strax og viðurkennir að þú missir þar með rétt til að hætta við kaupin (sbr. m-lið 18. gr. laganna). Ef eitthvað virkar ekki eins og því er lýst skaltu samt hafa samband. Við finnum lausn eða endurgreiðum.

4. Notkun aðgangsins

5. Höfundarréttur

Allt efni á grettla.com, þar á meðal framsetning textanna, hljóðbækurnar, myndböndin, skýringarnar, kaflaágripin, spurningarnar, myndirnar, forritunarkóðinn og hönnun vefsins, er eign Dags Inga Ingasonar og verndað samkvæmt höfundalögum nr. 73/1972. Það gildir líka þótt frumtextinn sjálfur sé öllum frjáls.

6. Þjónustan og ábyrgð

7. Breytingar á skilmálum

Við getum breytt þessum skilmálum. Breytingar á keyptum aðgangi taka aðeins gildi ef þær eru þér í hag eða ef þú samþykkir þær. Dagsetning nýjustu útgáfu kemur fram efst.

8. Lög og ágreiningur

Um skilmálana gilda íslensk lög. Komi upp ágreiningur reynum við fyrst að leysa hann með samtali. Neytendur geta líka leitað til Neytendastofu eða kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Annars má reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.